Ef maður spáir í þessu þá er að mínu mati glæpir sem skaða mest eru glæpir sem skaða fólkið sjálft. Þá á ég tildæmis við lítið barn sem verður fyrir því að verða kynferðislega misnotað. Barnið er varnarlaust og getur lítið sem ekkert streist á móti og veit stundum bara ekki hvað er i gangi. Það að misnota börn hefur áhrif á þau ævilangt. Þetta hefur sálræn áhrif og börn gætu lent í því og eru dæmi um það að þau fyrirlíta sálf sig.
Stúlkur sem hafa lent í þessu spyrja hugsanlega sjálfa sig. Hvað er að mér, vill mig enginn eða er ég svona mikið ógeð. Oft fylgir þessu mikið lauslæti. Þá er það ekki það að þeir einstaklingar sem lenda í þessu séu einhverjar druslur, heldur er þetta leit að ást og viðurkenningu. Bara það að einhver sýni áhuga. Þá finnst þessum einstaklingum þeir vera einhvers virði.
Því myndi ég segja að kynferðislegar misnotkanir og nauðganir séu allvarlegustu glæpirnir fyrir utan morð og allvarlegar líkamsárásir.
Því að steli einhver frá þér pening þá hefur það ekki eins mikil áhrif á þig og ef einhver nauðgar þér eða misnotar þig kynferðislega sem barn.
Ég sá í fréttunum svo kallaðar ólar sem eru settar á lappir þeirra sem eru að taka út dóma. Afhverju ekki að taka þetta út til að fylgjast með ferðum þeirra einstaklinga sem eru mjög veikir á þessu sviði og eru að misnota börn?
Ég er alveg á því að það er hægt að fyrirbyggja marga glæpi með því að prufa þessar ólar.
Gamall maður er á akstri á nýjum blæjubens að halda upp á það að vera laus við kjellinguna. Sá gamli lætur vindin leika við skallan á sér og þessi 3 hár sem eru eftir á toppnum á honum. Eftir smá stund lítur sá gamli í baksýnisspegilinn og sér lögguna fyrir aftan sig og svo á hraðmælirinn um leið sem var kominn upp í 180 km hraða. Sá gamli hugsar ég læt sko ekki lögguna ná mér á Bens. Gamli skallinn gefur allt í botn og byrjar að reyna stinga lögguna af en sér svo af sér og hægir á sér og stoppar út í kannti.
Löggan kemur og segir heyrðu það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur í dag og allveg að koma vaktaskipti. Ef þú kemur með ´nógu góða afsökun þá skulum við sleppa þér. Gamli skallinn hugsar sig vel um og lætur svo út úr sér. Hey sko konan mín stakk af með lögreglumanni fyrir nokkrum dögum og ég var bara svo hræddur um að þið væruð að skila henni aftur...
Ég er búin að vera pæla svoldið í þessu orði áhyggjur undanfarið því að maður hefur svo sem haft ágætan skammt af þeim undanfarið. Fjármálin allt í einu í steik og hitt og þetta sem maður hefur verið að eyða áhyggjum í. Þar sem maður er trúaður að þá á maður að sjalffssögðu að treysta Guði fyrir öllum sínum málum. Það eru 2 ritningarstaðir í Biblíunni sem benda manni á lausn undan áhyggjum.
Matt 11:28-30
-28- Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld. -29- Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar. -30- Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt.
Þetta vers minnir mann frekar á að þegar maður er orðin þreyttur og slygast undan áhyggjum að maður getur varpað þeim á Jesú og beðið hann um að bera þær fyrir mann og ekki einungis það heldur allt það sem ýþyngir manni. Síðan er seinna versið líka svoldið magnað...
Matt 6:25-33
-25- Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka, né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin? -26- Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim? -27- Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn? -28- Og hví eruð þér áhyggjufullir um klæði? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. -29- En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra. -30- Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins, sem í dag stendur, en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlitlir! -31- Segið því ekki áhyggjufullir: Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast? -32- Allt þetta stunda heiðingjarnir, og yðar himneski faðir veit, að þér þarfnist alls þessa. -33- En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki.
Til hvers að eyða tíma í áhyggjur þegar maður þarf þess ekki. Ef maður treystir Guði þá verða hlutirnir í lagi. Áhyggjur eru líka skaðvaldur gagnvart bænasvörum. Fólk biður til Guðs um að hjálpa kannski aðila sem á í vanda. Í stað þess að treysta Guði og fara sofa í rólegheitum að þá er eitt heilu nóttunum í áhyggjur. Semsagt ekkert traust til Guðs og því trúin ónýt. Því að bakvið orðið trú er traust. Þess vegna er gott að geta treyst Guði fyrir lífi sínu og öllu stóru sem smáu:)
Stuð stuð þá er kominn föstudagskvöld um og að gera eitthvað sniðugt.. allavegana er ég að fara í bíó og ætla svo að skella mér á miðnæturfund... Síðan á morgunn er líka skemmtilegur dagur.. þá er maður að fara horfa á Arsenal bursta Liverpool enn eina ferðina í bikarkeppninni;) Síðan er það Brodway, á afmæli sirkus.. Ég er búin að vera pæla undanfarið í hvað það er að hafa áhyggjur ég ætla að steja það á bloggið á morgunn. Ég er svo latur núna þannig að ég er ekki að nenna miklu eins og er...
Ég get ekki sagt að þetta ár byrji eitthvað sérstaklega vel, því að það fyrsta sem skeður er að skatturinn tók 80% af laununum minum þannig að ég fékk ekki mikið útborgað. Síðan er fartalvan sem ég keypti mér gölluð og það vantar diska með henni til að setja hana upp og Elkó á þá ekki til sem er bara fúllt. Síðan fór ég til þeirra og þeir ætluðu að láta mig fá xp forrit í skaðabætur svo þegar ég var komin heim þá var þetta eitthvað glatað forrit sem ég fékk og svo fór ég í dag aftur og þá fékk ég eldgamlan disk sem er bara með service pack 1 og talvan neitar að innstalla diskinn nema ég stilli hana á boot of dvd/cd og svo þegar ég fór inn á biosið þá var ekki hægt að beyta þessu. Síðan er fullt af shitti búið að koma fyrir en svona er þetta víst, stundum er bara allt á afturfótunum í smásund en svo er ég búin að fá 2 nýjar vinnur og önnur er svona aukavinna um helgar á Hótel Sögu þannig að maður á eftir að gera lítið annað en að vinna mikið á næstunni;)
Var að velta þessu orði ákvörðun fyrir mér áðan. Þetta er svoldið merkilegt orð því að við erum alltaf að taka ákvarðanir á hverjum degum. Á hverju degi ákveðum við það að fara á fætur, við ákveðum hvaða vinnu við sækjum um, við ákveðum hvað við viljum læra í skóla, við ákveðum hverja við kjósum sem vini okkar. Við ákveðum hvort við hofum á sjónvarpið og þá á hvaða sjónvarpsstöð við viljum horfa á. Sumar ákvarðanir eru stórar og aðrar smáar. En svo er aftur á móti þessi hugsun er ég að taka rétta ákvörðun? Ef mér eru boðnar margar vinnur þá verð ég að ákveða hverja af þessum vinnum ég vel. Allan dagin erum við að taka ákvarðanir. Þess vegna finnst mér þetta orð ákvörðun vera svoldið merkilegt og kom þetta í huga minn áðan þegar ég fattaði það í kringum svona 9-11ára tók ég ákvarðanir sem standa enþá. Ég ákvað að halda með Arsenal sem ég geri enn. Ég ákvað að stiðja Sjálfsstæðisflokkinn sem ég geri enn. Ég ákvað að halda með Ac Mílan í ítölsku knattspyrnunni. Ég ákvað að halda með Real Madrid í þeirri spænsku og þessar ákvarðanir standa enþá. Árið 1999 ákvað ég að fara í meðferð í fyrsta sinn og sú ákvörðun að hætta drekka stendur enn, en 6 jan eru 7 ár síðan ég fór í meðferð, fína fyrstu og einu. 15 janúar 2000 ákvað ég að gefa Jesú líf mitt og það stendur enþá í dag. Ákvarðanir eru mikilvægar og móta líf okkar og stefnu. Þess vegna finnst mér ég þurfa alltaf að hugsa mig vel um áður en ég ákveð eitthvað. Stundum tekur maður ákvarðanir sem maður sér eftir. Ef ákvarðanirnar eru slæmar þá er bara að læra af þeim og gera betur næst;)
Þá er ekki af því slegið að margir hafa eflaust gert áramótaheit þetta árið. Satt að segja gerði ég ekki neitt áramótaheit. Samt hef ég verið að velta fyrir mér að það er margt sem má fara betur hjá manni. Núna ætla ég að gefa ykkur kost á því að segja ykkar skoðun og gagnrýna mig eins og þið viljið en hvað er það sem ykkur finnst ég mætti gera betur á þessu ári en ég gerði í fyrra? Kannski geri eitthvað sem aðrir sjá betur en ég sjálfur sem betur mætti fara..