20. júní 2006 klukkan 16:57
Þessi hópur, sem leynilega kallar sig Bræðralagið, samanstendur af fólki sem dýrkar Satan og lýtur beinni stjórn hans. Þetta er ört vaxandi og mjög hættulegur dulspekihópur. Hann hefur tvær aðal bækistöðvar í Bandaríkjunum,- á vesturströndinni, aðallega á Los Angeles-San Francisco svæðinu, og hina í mið-vesturríkjum Bandaríkjanna, þar sem ég bjó. Þeim er skipt niður í staðarhópa eða hluta sem kallast nornaþing (covens). Fjöldi meðlima á nornaþingi getur verið á bilinu 5-10 manns til nokkurra þúsunda. Þetta er sami dulspekihópurinn og Hal Lindsey skrifar um í bók sinni, Satan is Alive And Well On Planet Earth, (Satan er lifandi og í fullu fjöri á jörðinni) og Mike Warnke skrifar um í bók sinni, The Satan Seller (Sölumaður Satans). Þetta er einnig bandaríski hluti ensku reglunnar sem skrifað er um í bók Doreen Irvine, Freed From Witchcraft (Frelsuð frá göldrum).
Regla þessi er mjög leynileg. Engin rituð félagaskrá er geymd. Jafnvel þeir samningar, sem gerðir hafa verið við Satan og undirritaðir með blóði meðlimanna, eru brenndir af æðstu prestunum. (Þetta vita lágt settir meðlimir ekki). Satanistarnir í þessari reglu koma alls staðar að úr þjóðfélaginu - ríkir og fátækir, menntafólk, fólk úr lögreglunni, úr stjórnmálaheiminum, fjármálamenn og -konur, og meira að segja nokkrir svokallaðir kristnir predikarar. Flest allt fólkið sækir kristnar kirkjur og er álitið “góðir þjóðfélagsþegnar” vegna þátttöku sinnar í ýmsum félagsmálum. Allt er þetta yfirhylming. Þetta fólk lifir tvöföldu lífi og er sérfræðingar í því - meistarar í táli.
“Og ekki er það undur, því að Satan sjálfur tekur á sig ljósengilsmynd. Það er því ekki mikið, þótt þjónar hans taki á sig mynd réttlætisþjóna...”
2. Korintubréf 11:14 -15.
Á fundunum ganga allir undir dulnefni, þannig að ef þeir hittast á förnum vegi þá vita þeir oftast ekki hvað hinn aðilinn heitir. Þeir gangast undir strangan aga Satans og djöfla hans. Þeir stunda mannfórnir nokkrum sinnum á ári og dýrafórnir mánaðarlega. Manneskjurnar sem fórnað er eru oftast börn - fædd utan hjónabands af ýmsum meðlimum reglunnar í umsjá lækna og hjúkrunarkvenna innan reglunnar, þannig að móðirin sést aldrei á sjúkrahúsi - barnsfæðingin er ekki skráð, og heldur ekki dauði barnsins. Öðrum fórnarlömbum hefur verið rænt, eða eru meðlimir reglunnar sem hafa brotið eitthvað af sér, eða sjálfboðaliðar, sennilega vegna þess að þeir geta ekki lifað með sjálfum sér lengur. Margir af þeim eru kaldrifjaðir morðingjar, sérstaklega hæfir sem slíkir.
Hvert nornaþing (coven) er leitt af æðsta presti (karli eða konu). Þetta fólk fær stöðu sína með því að þóknast Satan á ýmsan hátt og með því öðlast meiri og meiri galdramátt. Innan hópsins er mikið um illdeilur. Innan reglunnar eru nornir sem eru æðri öðrum nornum og eru þær kallaðar Systur Ljóssins.
Það eru nokkrir dulspekihópar í Bandaríkjunum sem kalla sig Hina upplýstu, (The Illuminati) og flestir þeirra tilheyra ekki Bræðralaginu. Einnig er hópur sem kallar sig Hina upplýstu sem er beinlínis leifar af hinum fornu spá- og galdramönnum Englands, Drúídum. Þeir eru mjög máttugt og hættulegt fólk og tengjast Bræðralaginu. Þeir stunda tíðar mannfórnir.
Systur Ljóssins komu fyrst til Bandaríkjanna frá Evrópu seint á 18. öld. Þær rekja sögu sína aftur til hinna myrku miðalda í Evrópu, en eiga reyndar rætur sínar að rekja til galdranorna í hinu forna Egyptalandi og Babýlóníu, og voru þær nægilega voldugar til þess að endurvekja þrjár af þeim tíu plágum sem voru sendar á Egypta á tímum Móse. (Sjá Aðra Mósebók, 7. kafla.) Þessar nornir eru gífurlega máttugar. Þær geta framkallað sjúkdóma og drepið, án þess að snerta fórnarlambið jafnvel í mörg þúsund kílómetra fjarlægð. Þetta er auðvitað framkvæmt með hjálp illra anda, en fólkið er látið halda að það stjórni illu öndunum, þegar það eru í rauninni Satan og djöflar hans sem eru að nota það.
Ótrúleg grimmdarverk eru framin innan reglunnar af fólki sem er svo undirokað af djöflum sem hafa tekið sér bólfestu í því, að það er búið að glata allri samúð og ást og virðist varla mannlegt lengur. Fjallað verður um sumt af þessu seinna í bókinni.
Hraður vöxtur Bræðralagsins er tákn um að við lifum á hinum síðustu tímum og er beinlínis uppfylling á spádómum Biblíunnar.
Í Bandaríkjunum og úti um allan heim eru þúsundir dulspekireglna og hópa, sem dýrka og þjóna Satan, undir fjölmörgum mismunandi nöfnum. Margir nefna Satan ekki því nafni, heldur nota eitthvað annað nafn. Margir vitna einfaldlega til hans sem “Húsbónda” (Master). Einnig eru til margir sjálfstæðir hópar af sjálflærðum nornum og Satanistum. Venjur og yfirbragð á tilbeiðslu í einstaka hópum og hreyfingum er mjög mismunandi.