Auglýsing

Leikur dagsins

Leit

Könnun

Trúirðu á Jesú Krist?

lag sem ég gerði sumarið 2002

03. júní 2006 klukkan 22:49
                              Ég lifi fyrir þig.                                                  Sigvarður Halldóruson. (Guðsgjöf) Tala Guð og ég mun syngja lag.Yfir höfin djúp mun ég fylgja þér.              Ef hver stjarna væri söngur,                                              x2og hver stund lofgjörð.Þá myndu flóðgáttir þínar opnast yfir hjarta mitt. Ég lifi .... ég lifi fyrir þig.  Eins og dýrð nærveru þinnar fyllir þennan stað,mun ég mæta þér í lofgjörð frá hjarta mínu.Það  er ekkert í þessum heimi sem þú getur ekki gert.        X2Frá dýrð til dýrðar að lofsöng til þín.Þú bindur um mitt brostna hjarta og þerrar öll mín tár.Fyrir upprisu þína er ég frjáls.Það er ekkert í þessum heimi sem þú getur ekki gert.Ég lifi ...... ég lifi fyrir þig.                                                                              

 

Sigvarður Halldóruson
Engin athugasemd

AÐVÖRUN!!!! hversu sjúkt getur fólk verið?

02. júní 2006 klukkan 02:46
Ég verð eiginlega að segja frá þessu. Í vetur þá fékk ég að ég hélt msnið hjá svaka skvísu á netinu. Þegar ég byrja að spjalla við hana, hafði ég ekki hugmynd um að væri bæði með ranga mynd af sér og undir röngu nafni. Í góðri trú. fór ég að hafa áhuga á henni. Meira segja var deit planað og hún Sagðist heita Kara en var samt undir hotmailinu Tara Sól 82. Ég fer á veitingastað og bíð og bíð og engin kemur, þannig að ég myndi ekki gera mig af fífli þá panta ég mér að borða og læt fer svo. Stuttu seinna segist hún hafa gugnað á því að koma og biðst afsökunar. Ég ákvað að fyrirgefa henni og gefa henni annað tækifæri. Þá segir hún mér að rétta nafnið sé Erla en ekki Kara. Síðan líður  tíminn og annað deit er planað, en ég fæ ekki að vita númerið hennar. 'Eg fer á Nasa þegar þetta Kiss kvöld var eða þegar Í svörtum fötum máluðu sig eins og Kiss. Þarna átti ég að hitta hana, og þar sem hún var með búin að senda mér ranga mynd af sér, þá fór ég náttúrulega að leyta að þeyrri manneskju. En fann engan. Síðan sendi ég henni mail og spyr hvað í öskpunum er í gangi. Hún segist hafa verið á fullu að leyta mér. Hún var með mitt númer og datt ekki einu sinni í hug að senda skilaboð eða reyna hringja. Þetta deit fer í klessu og síðan á sunnudeginum fæ ég email þar sem hún vildi fá mig í kaffi, en þar sem ég kom að besta vini mínum dánum á gólfinu heima hjá mér öllum afmynduðum og allt út í blóði, þá bakkaði hún og sagði að ég ætti að jafna mig og reyna svo aftur. Allt í lagi tíminn líður og ég fer að tala við hana aftur og annað deit er planað. En síðan skeður það að ein gella fer aðheimta að ég komi með sér á deit, en ég segi nei ég er að fara á deit með annari. En þessi stelpa vcar fullviss að ég væri bara að segja þetta til að losna við sig, til að sanna mál mitt biður hún mig um að senda sér mynd af Erlu sem ég var að fara á date með á sama tíma er ég að tala við Erlu á msn. Síðan segir gellan þetta er mynd af Mandy Moore bjáninn þinn. Ég var ekki allveg tilbúin að gleypa það og segi svo við Erlu að vinkona mín fullyrti það að þetta væri myndir af Mandy More sem hún væri búin að senda mér. Áður en ég veit af er Erla farin af msn. 'Eg sendi henni email og spyr hana hver í ösköpunum hún er, hún segist þá hafa verið hrædd og sendir svo réttar myndir af sér, en síðan hverfur hún af msn, sést ekki meir. En sagan er ekki búin því að allt í einu kemur beiðni frá tinnakaren84@hotmail.com um að accepta, ég gerði það. En allt í einu fer hún að spyrja hver ég sé og hvar ég hafi fengið emailið hennar. Ég segi henni hver ég sé en að mér hafi verið addað inn hjá henni. Hún fer að spyrja mig hvort ég sé að djóka eitthvað í henni og hver hafi látið mig fá msnið. Síðan fer ég að spjalla við hana og það er bara nákvæmlega eins og að tala við Erlu. Meira segja var hún með mynd af frægri leikkonu í display og þóttist vera hún. Og það fyndna við þetta var að þessi Tinna er líka hjúkka eins og Erla og segist þekkja Erlu vel. Svona til að leiða hana í gildru fer ég að spyrja hana um hitt og þetta og allt passar við þessa Erlum gjörsamlega allt saman. Síðan þegar ég lík samtali mínu við hana, tékka ég á nafninu hennar í þjóðskránni á heimabankanum hjá mér. Það er bara til eins Tinna Karen 84 módel sem er skráð í Garðabæ og á lögheimili í Danmörku. svo kemst ég að því að hin raunverulega Tinna Karen er í frjálsum í Breiðabliki og bara búin að ná mjög góðum afrekumog vinna til margra verðlauna..
Síðan þegar ég tala svo aftur við Tinnu fer ég að spyrja hana hvort hún sé í frjálsum hún segir nei. Síðan spyr ég hana hvort hún sé búin að vera eitthvað í Danmörku og svarið er aftur nei. Þar með sá ég það að gellan var að ljúga. Hún vissi ótrúlega margt um þessa Erlu en segist samt ekkert þekkja hana svo mikið og meira segja segist hún hafa hitt Erlu í dag, en gleymt að spyrja hana um mig. Síðan spyr ég þessa Tinnu ert þú ekki sama manneskjan og Erla? hún segir nei.. ég spyr þá á móti afhverju ertu þá undir röngu nafni og með ranga mynd í display á msn? Hún segir, sko ég ætla ekkert að vera leyfa fólki að vita hver ég er svo það finni ekki heimilisfangið hjá mér. Allveg nákvæmlega sama svar og Erla gaf upp. Svo til að gera þetta enþá skrítnara þá spyr ég hana , afhverju er þá sama ip tala á tölvunni hjá ykkur báðum? er þetta ekki frekar spúkí? en þá hvarf hún af sjónarhólnum allveg eins og Erla gerði... Hver þetta er í allvörunni, þá vil ég aðvara alla karlmenn um þessi 2 hotmail  tinnakaren84@hotmail.com   og tara_sol82@hotmail.com     þetta er sama mannsekjan  bara að aðvara svo fleyrri lendi ekki í henni... 
Sigvarður Halldóruson
9 athugasemdir

Sparnaður fyrir þjóðina:)

01. júní 2006 klukkan 23:23

Þar sem ég er allfarið á móti Forsetaembættinu, þá væri snilld að gera uppreisn og safna undirskriftum til að senda kind í framboð. Forsetinn er bara  til skrauts og óþarfa peningaeyðsla er í þessu embætti eins og í mörgum svallveislum hjá þessum embættismönnum. Peningar sem ættu að fara inn í HEilbrigðiskerfið fara í rugl handa ráðanmönnum þjóðarinnar. Hvernig væri það ef Forsetaembættið væri lagt niður, það er óþarfa kostnaður við að halda þessu uppi, forsetinn hefur hvort sem er ekki neitt vald og er eins og postulínsdúkka. 'Eg held að ríkisstjórnin ætti frekar  skerða þessa hluti í stað þess að vera alltaf að taka af þeim sem ekkert eiga... Vegna þess að ég veit ekki hvaða velmegun er alltaf verið að tala um, jú peningahliðin hefur aukist, en það þarf líka að hlúa að velferð landans. Fjölskyldan þarf líka að fá að vera í fyrirrúmi. En það er bara ekki mikill grundvöllur fyrir því í dag að fjölskyldan njóti ávinnings á því að búa á þessu landi. Á meðan peningahliðin hefur vaxið í landinu, þá hafa stéttaskiptingar átt sér stað, hinir ríku verða ríkari og hinir fátæku fátækari. Þegar launahækkarnir hafa á sér stað hjá verkafólkinu þá er það um nokkrar krónur og fólk fær ekki einu sinni að njóta þess að ´fá nokkrar krónur í kauphækkun, því að um leið og kaupið hækkar hjá verkamanninum þá hækka matvörurnar. Ef verkamaðurinn ætlar að fá kauphækkun þá verður allt vitlaust. En ef það á að hækka kaupið hjá ráðamönnum þjóðarinnar, þá er það hækkað um 40-50 þús á mán eins og ekkert sé. Hvaða lýðræði er þetta eiginlega? Svo er menn hissa að landin krefjist svara hvert peningarnir fara sem eiga að fara í heilbrigðiskerfið. AFhverju vantar 100 hjúrkunarfræðinga á landspítalann? Afhverju er verið að mismuna kjúkrunarfræðingum á launum. Það var flutt inn hjúkrunarfræðinga frá Danmörku sem fá allt að 60 % hærri laun en íslensku hjúkkurnar. Hvað mismunum og jafnrétti er í þessu? Afhverju er hálf þjóðin á þynglyndislyfjun? er það af því að hún er svo hamingjusöm? nei langt því frá. Það er ekki nóg að landið vaxi efnislega. Andelga hliðin verður líka að vera með og allir eiga njóta góðs af því að velferðin eigi sér stað í landinu en ekki einhverjir fáir útvaldir sem ætla sér að eignast landið. Ef það yrði tekið til í herbúðum ríkisstjórnarinnar, þá yrði það mikill ávinningur fyrir þjóðina ef öllum þessum svallveislum væri sleppt á kostnað skattborgara og forsetaembættið lagt niður. ´Því þetta er allgjör sóun á fé. Hvernig hefur fjölskyldulífið verið í landinu eftir að þessi efnislega velferð ef það má kalla það, byrjaði að koma yfir þjóðina? Fjölskyldan hefur legið á hakanum, velferðin er fyrir bissnesmennina en ekki fjölskylduna. Hjónaskilnaðir hafa alldrei verið fleyrri en eimitt nú, sjálfsmorðstíðnin á 'Islandi er orðin ein sú hæsta í heiminum í dag. Fíkniefnavandin er orðin landanum ofaukinn, glæpagengi og mafíósar hafa tekið sér bólfestu í landinu. þar á meðal Hells Angels og Lítháíska mafían sem er farin að framleiða spítt á Íslandi. Vændi hefur alldrei verið meira en eimitt nú. Maður sér allt niður í litla krakka verða fyrir barðinu á fíkniefnum og ofbeldis. Ofbeldið verður alltaf grófara og grófara... Það er margt annað sem maður gæti nefnt, en það er mín skoðun að hlutverk alþingis á ekki að vera gera hinu ríkari, ríkari og hina fátæku fátækari og hirða allt sem þeir geta af þeim. Hlutverk Alþingis á að vera að halda uppi jafnrétti í landinu og að allt gangi jafnt milli manna...

Sigvarður Halldóruson
Engin athugasemd

Svar til guðleysingjans

31. maí 2006 klukkan 01:17
Jesú Kristur er ekki hugtak um lífið sjálft, hann er Guð. Til þess að skilja afhverju Jesús kom á jörðina þarftu að skilja sköpunarsöguna og fall mannsins. Þegar Guð skapaði jörðina þá gaf hann manninum yfirráð yfir jörðinni. Maðurinn vissi ekki hvað hið vonda var. En síðan platar Höggormurinn sem er satan Evu til að fá sér bita af ávextinum sem er talið vera epli hún platar svo Adam til að fá sér bita líka, þar sem þau óhlýðnuðust Guði og syndin kom inn í heiminn þá gat Guð ekki lengur lifað í nálægð við manninn. Því að Guð er heilagur og getur ekki komið nálægt synd. Við þetta missir maðurinn yfirráð yfir jörðinni í hendurnar á satan. En Guð segir strax á eftir  í1Mós 3:14-15

-14- Þá sagði Drottinn Guð við höggorminn: Af því að þú gjörðir þetta, skalt þú vera bölvaður meðal alls fénaðarins og allra dýra merkurinnar. Á kviði þínum skalt þú skríða og mold eta alla þína lífdaga. -15- Og fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis. Það skal merja höfuð þitt, og þú skalt merja hæl þess.

Höggormurinn er satan , það að eta mold alla lífdaga er að nærast á því að skemma manninn, af moldu ertu komin og moldu skaltu aftur verða. Fjandskapurinn sem Drottinn setur milli Konunar sem er María Mey er Jesú Kristur. Það að sæðið sem er Jesús Kristur muni merja höfuð satans er að Jesú Kristur muni koma og sigra hann en að satan muni merja hæl hans er að satan mun reyna allt til að drepa Jesú.

Það var alltaf áætlun að Jesú Kristur kæmi og myndi bjarga okkur og tilgangur með komu Krists í heiminn var til að frelsa okkur undan dómi heimsins sem er á valdi satans og endurreysa samfélagið sem átti alltaf að vera á milli Guðs og manna. Aðeins í ´Jesú Kristi getum við komið í nálægð við Guð. Það er að segja fengið að koma inn í nærveru Guðs. Til þess að Drottinn gæti leyst okkur þurfti hann líka að fara ákveðna leið að manninum til að undirbúa leiðina að frelsinu. Það sem Drottinn gerir er að hann gerir blóðsáttmála við Abraham og nær þannig tengslum við mennina. Abraham átti Ísak og Ísak átti Jakob sem síðar hét Ísrael. Ísrael átti 12 syni og út frá þeim kom 12 ættkvíslir Ísraels. Íslendingar eiga ættir sínar að rekja til Benjamíns. þannig að eftir allt erum við bara komnir af Gyðingum.. Benjamínítar voru kaupsýslumenn sem má allveg sjást á Íslandi þar sem Reykjavík er ein mesta verslunarborg í heimi miðað við höfðatölu. En aftur að hinu. Koma Krist í heiminn gekk ekki áfallalaust fyrir sig. Menn sem boðuðu komu hans voru líflátnir og allt gert til að útrýma Ísraelsmönnum. En af Júda ættkvísl fæðist svo Davíð Konungur. Þá koma spádómar frá Guði að Frelsari heimsins muni setjast í hásæti Davíðs og endir ríki hans skal engan edir  taka. Allt gekk eftir Jesús fæðist í Betlehem allveg eins og Davíð konungur. En þar sem satan stjórnar heiminum þá blési hann því brjóst Landstjórnas á þeim tíma að útrýma öllum börnum sem voru 2 ára og yngri, því að hann vissi að konungur væri fæddur sem væri öllum konungum meiri. Þannig að hann leitaðist við drepa hann, en Engill vitjar Maríu og Jósefs í draumi og varar þau við og þau fara til Egyptalands og eru þar fyrstu 4 ár Jesú. Allveg eins og spádómurinn sagði satan mun reyna allt til að hindra komu Krists í heiminn því að hann veit að hann verður sigraður. En þar sem Jesús kom í heiminn þurfti hann að lifa fullkomnu lífi sem honum tókst. Ástæða þess að Guð skaparinn auðmykti sig og kom fram sem maður.

Fil 2:5-11

-5- Verið með sama hugarfari sem Jesús Kristur var. -6- Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur. -7- Hann svipti sig öllu, tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur. -8- Hann kom fram sem maður, lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi. -9- Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra, -10- til þess að fyrir nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni, jörðu og undir jörðu -11- og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar: Jesús Kristur er Drottinn.  

ástæða fyrir komu Krists var sú að með því að setja upp lögmálið fyrir mennina, sannaði Guð að menn væru ófullkomnir og gætu ekki gert allt rétt. Ástæða fyrir því afhverju blóð er notað sem fórn fyrir synd er

3Mós 17:11.

Því að líf líkamans er í blóðinu, og ég hefi gefið yður það á altarið, til þess að með því sé friðþægt fyrir yður, því að blóðið friðþægir með lífinu.

Biblían segir að synd veldur dauða til þess að gefa okkur líf þurfum við að taka við fyrirgefningu sem við fáum hjá Jesú Kristi. Því að með blóði sínu veitir hann okkur mönnunum líf. Til að byrja með voru dýr notuð til fórnar fyrir fyrirgefningu syndana. Það tíðkast þá þannig að gallalaust lamb var leitt fram og sá sem var að leita fyirgefningar lagði hönd sína á höfuð lambsins og játaði syndir sínar. Þar með færðust syndir mannsins yfir á lambið og lambinu var slátrað til fyrirgefningar syndar þessa manns. En núna í dag þarf ekki að fórna dýrum til fyrirgefningar synda er sú að Fórn Jesú Krists er það máttug að hún dugar til að hreinsa syndir alls heimsins.

Heb 9:23-28

-23- Það var því óhjákvæmilegt, að eftirmyndir þeirra hluta, sem á himnum eru, yrðu hreinsaðar með slíku. En sjálft hið himneska krefst betri fórna en þessara. -24- Því að Kristur gekk ekki inn í helgidóm höndum gjörðan, eftirmynd hins sanna helgidóms, heldur inn í sjálfan himininn, til þess nú að birtast fyrir augliti Guðs vor vegna. -25- Og ekki gjörði hann það til þess að frambera sjálfan sig margsinnis, eins og æðsti presturinn gengur inn í hið heilaga á ári hverju með annarra blóð. -26- Þá hefði hann oft þurft að líða frá grundvöllun heims. En nú hefur hann birst í eitt skipti fyrir öll við endi aldanna til að afmá syndina með fórn sinni. -27- Og eins og það liggur fyrir mönnunum eitt sinn að deyja og eftir það að fá sinn dóm, -28- þannig var Kristi fórnfært í eitt skipti til þess að bera syndir margra, og í annað sinn mun hann birtast, ekki sem syndafórn, heldur til hjálpræðis þeim, er hans bíða. 

Núna í dag getum við komið fram fyrir Guð og fengið fyrirgefningu synda okkar og öðlast eilíft líf, sem enginn getur veitt nema Jesú Kristur. Eflaust gæti þessi spurning komið upp, fyrst Guð er svona góður afhverju leyfði hann þá höggorminum að plata Adam og Evu og þar með að eyðileggja Paradís? Guð er kærleikur, kærleikurinn gefur alltaf frjálst val. Maðurinn þurfti að hafa valmöguleika, því að hann átti að það að elska Guð.  Annars hefði það verið kúgun, Guð leyfði ekki heldur höggorminum að plata þau, Guð var búin að segja við þau þetta megið þið ekki gera, en þau gerðu það samt og þar með óhlýðnuðust og allt fór eins og það fór. Jesús mun koma aftur, en þá ekki eins og kom fyrst heldur mun hann koma og sækja þá sem honum tilheyra og hinir eftir skildir. Ekki það að Guð sé eitthvað vondur, heldur gefur hann mönnum frjálst val til að taka við Jesú Kristi og fá þá fyrirgefningu fyrir syndir sínar og eilíft val. Maðurinn vel og uppsker eftir því. Hafni hann Jesú Kristi þá er enga aðra björgun að fá, því að það eru bara til einar dyr inn í himnaríki, og þær dyr eru Jesú Kristur. Semsagt það er bara til einn sannleikur og hann er Jesú Kristur ....

Sigvarður Halldóruson
Engin athugasemd