Auglýsing

Leikur dagsins

Leit

Könnun

Trúirðu á Jesú Krist?

Áhyggjur

06. janúar 2007 klukkan 18:55
Ég er búin að vera pæla svoldið í þessu orði áhyggjur undanfarið því að maður hefur svo sem haft ágætan skammt af þeim undanfarið. Fjármálin allt í einu í steik og hitt og þetta sem maður hefur verið að eyða áhyggjum í. Þar sem maður er trúaður að þá á maður að sjalffssögðu að treysta Guði fyrir öllum sínum málum. Það eru 2 ritningarstaðir í Biblíunni sem benda manni á lausn undan áhyggjum.

Matt 11:28-30

-28- Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld. -29- Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar. -30- Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt.


Þetta vers minnir mann frekar á að þegar maður er orðin þreyttur og slygast undan áhyggjum að maður getur varpað þeim á Jesú og beðið hann um að bera þær fyrir mann og ekki einungis það heldur allt það sem ýþyngir manni. Síðan er seinna versið líka svoldið magnað...

Matt 6:25-33

-25- Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka, né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin? -26- Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim? -27- Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn? -28- Og hví eruð þér áhyggjufullir um klæði? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. -29- En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra. -30- Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins, sem í dag stendur, en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlitlir! -31- Segið því ekki áhyggjufullir: Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast? -32- Allt þetta stunda heiðingjarnir, og yðar himneski faðir veit, að þér þarfnist alls þessa. -33- En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki.

Til hvers að eyða tíma í áhyggjur þegar maður þarf þess ekki. Ef maður treystir Guði þá verða hlutirnir í lagi. Áhyggjur eru líka skaðvaldur gagnvart bænasvörum. Fólk biður til Guðs um að hjálpa kannski aðila sem á í vanda. Í stað þess að treysta Guði og fara sofa í rólegheitum að þá er eitt heilu nóttunum í áhyggjur. Semsagt ekkert traust til Guðs og því trúin ónýt. Því að bakvið orðið trú er traust. Þess vegna er gott að geta treyst Guði fyrir lífi sínu og öllu stóru sem smáu:)

Sigvarður Halldóruson

Skrifa athugasemd